Dagur  hinna villtu  blóma

Til baka 

            

13. júní  2010  

 

Bláklukkulyng

 

Sólblóm

    

Dagur hinna villtu blóma var haldinn sunnudaginn 13. júní árið 2010. Þann dag gafst fólki víðs vegar um landið kostur á að fara í tveggja tíma gönguferð um nágrenni sitt án endurgjalds, og fá leiðsögn um algengustu plöntur sem þar vaxa. Þátttakan var meiri en nokkru sinni áður, alls 211 gestir í 16 skoðunarferðum. Neðst á þessari síðu er tengill inn á síður fyrri blómadaga, allt frá árinu 2004 þegar hann var fyrst haldinn hér á Íslandi. 

 

 

Árið 2010 voru plöntuskoðunarferðir á eftirtöldum stöðum:

1. Sog á Reykjanesskaga. Mæting kl. 13:00 á borholuplaninu við Sog (framhjá Trölladyngju og upp brekkuna). Beygið út af Reykjanesbraut við Kúagerði í átt að Keili. Við háspennulínu er snarbeygt til hægri og ekið að Höskuldarvöllum og fram með Trölladyngju. Leiðbeinendur: Ragnheiður E. Jónsdóttir og Jóhanna B. Hergeirsdóttir. Fjöldi gesta: 18

2. Laugarnestangi í Reykjavík. Mæting kl. 11 við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga. Leiðsögn: Hjörtur Þorbjörnsson, safnvörður Grasagarðs Reykjavíkur. Gengið um Laugarnestanga, en þar er gróðurfar fjölbreytt. Fjallað verður um gróður svæðisins og plöntur greindar til tegundar. Fjöldi gesta: 53

3. Kópavogsdalurinn. Mæting kl. 13:00 á bílastæðinu við Digraneskirkju. Í ferðinni verður leitast við að kynna fyrir fólki þær villtu plöntutegundir sem fyrir augu ber á þessu vinsæla útivistarsvæði. Genginn verður tiltölulega stuttur hringur en farið rólega yfir svo öllum hæfi. Leiðbeinandi: Gróa Valgerður Ingimundardóttir. Fjöldi gesta: 14

4. Hvanneyri. Mæting kl. 10:00 við kirkjuna á Hvanneyri. Leiðsögn um plöntur með grasnytja- og þjóðtrúarívafi. Leiðbeinandi: Guðrún Bjarnadóttir. Fjöldi gesta: 3

5. Snæfellsnesþjóðgarður. Mæting á Búðum kl. 14:00. Farið verður um Búðahraun, en þar er einstakt blómaskrúð og sjaldæfir og stórir burknar. Leiðbeinandi: Guðrún Lára Pálmadóttir. Fjöldi gesta: 11

6. Skarðsströnd við Breiðafjörð. Mæting á bænum Ytra-Fagradal á Skarðsströnd kl. 13:00. Gengið verður verður að ósum Fagradalsár, og með fjörunni að Nýpurdal og heim að bænum Nýp. Leiðbeinendur: Þóra Sigurðardóttir og Halla Steinólfsdóttir. Fjöldi gesta: 4

7. Ísafjörður. Mæting kl. 14:00 á bílastæðinu við tjaldstæðið í Tunguskógi. Leiðbeinendur: Kristjana Einarsdóttir og Christian Gallo. Fjöldi gesta: 16

8. Hólmavík. Mæting við sundlaugina á Hólmavík kl. 14:00. Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir. Fjöldi gesta: 7

9. Naustaborgir á Akureyri. Mæting kl. 14:00 við hlið Naustaborga að norðaustan, skammt ofan Sómatúns í Naustahverfi. Leiðbeinandi: Hörður Kristinsson. Fjöldi gesta: 3

10. Grund í Eyjafirði. Mæting við hliðið á trjáreitnum ofan við Grund kl. 10:00 fyrir hádegi. Skoðaðar verða villtar plöntur í nágrenni reitsins og inni í honum, ásamt gömlum, ræktuðum trjám. Leiðbeinendur verða Hörður Kristinsson og Helgi Þórsson. Fjöldi gesta: 14

11. Vatnajökulsþjóðgarður í Ásbyrgi. Mæting við Gljúfrastofu kl. 14:00. Farið verður um Ásbyrgi. Leiðbeinandi: Jóna S. Óladóttir, landvörður. Fjöldi gesta: 7

12. Grímstorfa á Fljótsdalshéraði. Mæting kl. 9:30 við heimreiðina að Hafrafelli. Gengið verður undir Hafrafellinu að Grímstorfu og farið upp í hana. Gert er ráð fyrir að öll ferðin taki 3-4 tíma, og fólk er beðið að vera vel skóað. Leiðbeinandi: Skarphéðinn G. Þórisson. Fjöldi gesta: 14

13. Neskaupstaður. Mæting kl. 10:00 á bílastæðinu við Norðfjarðarvita. Gengið verður út í Fólkvang Neskaupstaðar, um Haga, Urðir og upp í Skálasnið. Leiðbeinandi: Erlín Emma Jóhannsdóttir. Fjöldi gesta: 8

14. Vatnajökulsþjóðgarður í Skaftafelli. Mæting við þjónustumiðstöðina í Skaftafelli kl. 14:00. Leiðbeinandi: Hálfdán Björnsson. Fjöldi gesta: 12

15. Kirkjubæjarklaustur. Mæting við Skaftárskála kl. 16:00. Gengið að Hæðargarðsvatni og um Landbrotshóla. Leiðbeinendur: Ólafía Jakobsdóttir og Snorri Baldursson. Fjöldi gesta: 8

16. Sólheimar í Grímsnesi. Mæting kl. 13:00 við Sesseljuhús - umhverfissetur á Sólheimum. Leiðbeinandi: Sigurður H. Magnússon. Fjöldi gesta: 19

 

Sog Reykjanesi 18
Laugarnestangi 53
Kópavogur 14
Hvanneyri 3
Snæfellsnesfókvangur 11
Skarðsströnd 4
Ísafjörður 16
Hólmavík 7
Naustaborgir 3
Grund í Eyjafirði 14
Ásbyrgi 7
Grímstorfa Héraði 14
Neskaupstaður 8
Skaftafell 12
Kirkjubæjarklaustur 8
Sólheimar Grímsnesi 19
Samtals: 211

 

Flóruvinir standa fyrir degi hinna villtu blóma, og veita leiðsögn sem sjálfboðaliðar. Ýmsar stofnanir hafa stutt og staðið  með flóruvinum að þessum degi á hverjum stað fyrir sig, meðal annarra Grasagarðurinn í Laugardal, Ferðafélag Íslands, Ferðafélagið Útivist, Hólaskóli, Landbúnaðarháskóli Íslands, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrufræðistofur landshlutanna og Umhverfisstofnun.

 

Flóruvinir og aðrir sem eru reiðubúnir til að standa fyrir plöntuskoðunarferð á blómadaginn eru hér með beðnir að láta vita á póstfangið hkris@nett.is fyrir 15. maí næstkomandi. Taka þarf fram hvar fólk á að mæta, og á hvaða tíma dagsins 14. júní.

Gjarnan mættu einnig fylgja með upplýsingar um hvað markverðast er að sjá á því svæði sem skoðað verður. Upplýsingum verður safnað saman hér á vefsíðuna eins og gert hefur verið síðastliðin ár. 

 

Dagur hinna villtu blóma hefur síðan 2004, þegar Íslendingar bættust í hópinn,  verið haldinn á öllum Norðurlöndunum ásamt Færeyjum og Grænlandi.

 

Blómadagarnir 2004-2009