Blómadagurinn 2011
Árið 2010 voru plöntuskoðunarferðir á eftirtöldum stöðum:
1. Sog á Reykjanesskaga. Mæting kl. 13:00 á borholuplaninu við Sog (framhjá Trölladyngju og upp brekkuna). Beygið út af Reykjanesbraut við Kúagerði í átt að Keili. Við háspennulínu er snarbeygt til hægri og ekið að Höskuldarvöllum og fram með Trölladyngju. Leiðbeinendur: Ragnheiður E. Jónsdóttir og Jóhanna B. Hergeirsdóttir. Fjöldi gesta: 18
2. Laugarnestangi í Reykjavík. Mæting kl. 11 við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga. Leiðsögn: Hjörtur Þorbjörnsson, safnvörður Grasagarðs Reykjavíkur. Gengið um Laugarnestanga, en þar er gróðurfar fjölbreytt. Fjallað verður um gróður svæðisins og plöntur greindar til tegundar. Fjöldi gesta: 53
3. Kópavogsdalurinn. Mæting kl. 13:00 á bílastæðinu við Digraneskirkju. Í ferðinni verður leitast við að kynna fyrir fólki þær villtu plöntutegundir sem fyrir augu ber á þessu vinsæla útivistarsvæði. Genginn verður tiltölulega stuttur hringur en farið rólega yfir svo öllum hæfi. Leiðbeinandi: Gróa Valgerður Ingimundardóttir. Fjöldi gesta: 14
4. Hvanneyri. Mæting kl. 10:00 við kirkjuna á Hvanneyri. Leiðsögn um plöntur með grasnytja- og þjóðtrúarívafi. Leiðbeinandi: Guðrún Bjarnadóttir. Fjöldi gesta: 3
5. Snæfellsnesþjóðgarður. Mæting á Búðum kl. 14:00. Farið verður um Búðahraun, en þar er einstakt blómaskrúð og sjaldæfir og stórir burknar. Leiðbeinandi: Guðrún Lára Pálmadóttir. Fjöldi gesta: 11
6. Skarðsströnd við Breiðafjörð. Mæting á bænum Ytra-Fagradal á Skarðsströnd kl. 13:00. Gengið verður verður að ósum Fagradalsár, og með fjörunni að Nýpurdal og heim að bænum Nýp. Leiðbeinendur: Þóra Sigurðardóttir og Halla Steinólfsdóttir. Fjöldi gesta: 4
7. Ísafjörður. Mæting kl. 14:00 á bílastæðinu við tjaldstæðið í Tunguskógi. Leiðbeinendur: Kristjana Einarsdóttir og Christian Gallo. Fjöldi gesta: 16
8. Hólmavík. Mæting við sundlaugina á Hólmavík kl. 14:00. Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir. Fjöldi gesta: 7
9. Naustaborgir á Akureyri. Mæting kl. 14:00 við hlið Naustaborga að norðaustan, skammt ofan Sómatúns í Naustahverfi. Leiðbeinandi: Hörður Kristinsson. Fjöldi gesta: 3
10. Grund í Eyjafirði. Mæting við hliðið á trjáreitnum ofan við Grund kl. 10:00 fyrir hádegi. Skoðaðar verða villtar plöntur í nágrenni reitsins og inni í honum, ásamt gömlum, ræktuðum trjám. Leiðbeinendur verða Hörður Kristinsson og Helgi Þórsson. Fjöldi gesta: 14
11. Vatnajökulsþjóðgarður í Ásbyrgi. Mæting við Gljúfrastofu kl. 14:00. Farið verður um Ásbyrgi. Leiðbeinandi: Jóna S. Óladóttir, landvörður. Fjöldi gesta: 7
12. Grímstorfa á Fljótsdalshéraði. Mæting kl. 9:30 við heimreiðina að Hafrafelli. Gengið verður undir Hafrafellinu að Grímstorfu og farið upp í hana. Gert er ráð fyrir að öll ferðin taki 3-4 tíma, og fólk er beðið að vera vel skóað. Leiðbeinandi: Skarphéðinn G. Þórisson. Fjöldi gesta: 14
13. Neskaupstaður. Mæting kl. 10:00 á bílastæðinu við Norðfjarðarvita. Gengið verður út í Fólkvang Neskaupstaðar, um Haga, Urðir og upp í Skálasnið. Leiðbeinandi: Erlín Emma Jóhannsdóttir. Fjöldi gesta: 8
14. Vatnajökulsþjóðgarður í Skaftafelli. Mæting við þjónustumiðstöðina í Skaftafelli kl. 14:00. Leiðbeinandi: Hálfdán Björnsson. Fjöldi gesta: 12
15. Kirkjubæjarklaustur. Mæting við Skaftárskála kl. 16:00. Gengið að Hæðargarðsvatni og um Landbrotshóla. Leiðbeinendur: Ólafía Jakobsdóttir og Snorri Baldursson. Fjöldi gesta: 8
16. Sólheimar í Grímsnesi. Mæting kl. 13:00 við Sesseljuhús - umhverfissetur á Sólheimum. Leiðbeinandi: Sigurður H. Magnússon. Fjöldi gesta: 19
Sog Reykjanesi | 18 |
Laugarnestangi | 53 |
Kópavogur | 14 |
Hvanneyri | 3 |
Snæfellsnesfókvangur | 11 |
Skarðsströnd | 4 |
Ísafjörður | 16 |
Hólmavík | 7 |
Naustaborgir | 3 |
Grund í Eyjafirði | 14 |
Ásbyrgi | 7 |
Grímstorfa Héraði | 14 |
Neskaupstaður | 8 |
Skaftafell | 12 |
Kirkjubæjarklaustur | 8 |
Sólheimar Grímsnesi | 19 |
Samtals: | 211 |