Dagar hinna villtu blóma
Dagur hinna villtu blóma
16. júní 2013
Árið 2013 var boðið upp á plöntuskoðunarferðir sem hér segir:
1. Reykjavík - Viðey.
Mæting í Viðey kl. 12:30. Þátttaka í göngunni er ókeypis, en gestir
þurfa að greiða ferjutoll til að komast þangað (fullorðnir: 1000 kr. og
börn 7-15 ára: 500 kr.). Brottför til Viðeyjar frá gömlu höfninni kl. 12
og Skarfabakka kl. 12:15. Leiðsögn:
Hjörtur Þorbjörnsson. Fjöldi
gesta: 49.
2. Borgarnes.
Mæting kl. 10:00 við fólkvanginn Einkunnir,
vestast í landi Hamars við Borgarnes. Leiðsögn: Guðrún Bjarnadóttir og
Hilmar Már Arason.
Fjöldi gesta: 20.
3. Hvanneyri.
Mæting kl. 14:00 við kirkjuna á Hvanneyri.
Leiðsögn: Björn Þorsteinsson.
Fjöldi gesta: 1.
4. Skorradalur.
Mæting kl. 16:00 við Markeyri milli Háafells og Stálpastaða, norðan við
Skorradalsvatn innanvert. Skoðaður verður gróður innan og utan
skógræktargirðingar og könnuð áhrif sauð-fjárbeitar á gróðurfar.
Leiðsögn: Þorvaldur Örn Árnason, Ragnheiður Elísabet Jónsdóttir og
Jóhanna Berghild Hergeirsdóttir. Boðið er upp á jurtate, tínt á staðnum.
Fjöldi gesta: 4.
5. Ólafsdalur við Gilsfjörð.
Mæting kl. 14:00 við gamla landbúnaðar-skólann í Ólafsdal. Genginn
verður hringur um svæðið, að grunni gamla tóvinnuskólans, meðfram ánni
og aftur heim í Ólafsdal. Leiðsögn: Halla Steinólfsdóttir.
Fjöldi gesta: 6
6. Látrabjarg - Vesturbyggð.
Mæting við vitann á Bjargtöngum kl. 14:00. Gengið verður um brúnir
Látrabjargs og til baka um Seljadal sem hefur að geyma fjölbreyttari
flóru og merkar mannvistaleifar. Fremur auðveld ganga sem tekur um 2
klst. Leiðsögn: Hákon Ásgeirsson landvörður.
Fjöldi gesta: 2.
7. Ísafjörður.
Mæting við Melrakkasetrið í Súðavík kl. 11:00. Leiðsögn: Kristjana
Einarsdóttir og Cristian Gallo.
Fjöldi gesta: 6.
8. Hólmavík.
Mæting við sundlaugina á Hólmavík kl. 11:00. Áætlað er að ganga meðfram
sjó við Hólmavík. Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir.
Fjöldi gesta: 3.
9. Siglufjörður.
Mæting kl. 10:00 innst í Hólsdal þar sem vegurinn endar að vestanverðu.
Gengið verður þaðan inn í tunguna milli Selár og Blekkilsár.
Sterkir skór eða stígvél æskileg, því ganga þarf yfir snjó. Gróður
snjódældanna skoðaður, að svo miklu leyti sem hann er kominn undan
snjó. Leiðsögn: Hörður Kristinsson.
Fjöldi gesta: 14.
10. Akureyri, Krossanesborgir.
Mæting kl. 11:00 við bílastæðið norðan við BYKO. Leiðbeinendur: Hjördís
Haraldsdóttir og Sesselja Ingólfs-dóttir.
Fjöldi gesta: 29.
11. Ásbyrgi.
Mæting kl. 14:00 við Gljúfrastofu. Leiðsögn:
Árni Björn Árnason landvörður.
Fjöldi gesta: 0
12. Neskaupstaður.
Mæting kl. 10:00 á bílastæðinu við fólkvanginn. Gengið verður út í
fólkvang Neskaupstaðar um Haga, Urðir og upp í Skálasnið. Gangan tekur
um 1½
til 2 tíma. Leiðsögn: Erlín Emma Jóhannsdóttir
og Gerður Guðmundsdóttir.
Fjöldi gesta: 12.
13. Fáskrúðsfjörður.
Mæting kl. 10:00 við Selá rétt fyrir utan Eyri á suðurströnd
Fáskrúðsfjarðar. Gengið verður upp með Selánni í samstarfi við
Göngufélag Suðurfjarða. Leiðsögn: Líneik Sævarsdóttir.
Fjöldi gesta: 14.
14. Skaftafell.
Mæting kl. 11:00 við Skaftafellsstofu. Leiðsögn: Hrafnhildur
Ævarsdóttir, landvörður.
Fjöldi gesta: 5.
Gestafjöldi 2013 samtals 2013: 165.