Dagur hinna villtu blóma
19. júní 2016
Árið 2016 þann 19. júní var boðið upp á plöntuskoðunargöngur sem hér
segir:
1. Reykjavík, Grasagarðurinn í Laugardal.
Mæting við Áskirkju kl. 15:00. Gengið verður um Laugarásinn. Leiðsögn:
Björk Þorleifsdóttir,
verkefnisstjóri
fræðslu og miðlunar.
Fjöldi gesta: 12.
2. Steingrímsfjörður. Mæting
kl. 16:00 á Sævangi við Steingrímsfjörð. Athöfnin hefst með
smáfyrirlestri um plöntur og blóm, en í framhaldi verður farið í
göngutúr og skoðaðar helstu plöntur sem vaxa á svæðinu þarna í kring.
Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir. Kaffihlaðborð í Sævangi sama dag.
Fjöldi gesta: 8.
3. Akureyri, Krossanesborgir.
Mæting kl. 11:00 á bílastæðinu norðan við ByKo. Gengið verður inn í
Krossanesborgir. Leiðsögn: Hjördís Haraldsdóttir og Sesselja
Ingólfsdóttir.
Fjöldi gesta: 40.
4. Reyðarfjörður, Hólmanes.
Mæting við upplýsingaskiltið á bílastæðinu kl. 10:00. Gengið um
friðlandið sem hefur að geyma ýmsar einkennisjurtir Austfjarða auk
allmargra sjaldséðra tegunda. Leiðsögn: Guðrún
Óskarsdóttir, Náttúrustofu Austurlands.
Fjöldi gesta: 0.
5. Neskaupstaður, skógræktin.
Mæting fyrir ofan strandblaksvöllinn kl. 10:00. Gengið um skógræktina
auk þess sem rýnt verður í nýjan gróður í nágrenni
snjóflóðavarnargarðsins. Leiðsögn: Elín Guðmundsdóttir, Náttúrustofu
Austurlands.
Fjöldi gesta: 5.
6. Vatnajökulsþjóðgarður, Skaftafell.
Mæting kl. 13:55 fyrir utan Skaftafellsstofu og lagt af stað kl. 14:00.
Gangan tekur um það bil klukkustund og leiðbeiningar verða á íslensku.
Leiðsögn: Hrafnhildur Ævarsdóttir, landvörður.
Fjöldi gesta: 0
7. Suðurland, Alviðra.
Mæting við hlöðuna á umhverfissetrinu Alviðru (gegnt Þrastarlundi) kl.
15:00. Gengið verður um austurhlíðar Ingólfsfjalls og flóran dásömuð.
Takið með ykkur plöntuhandbækur, myndavélar, teikniblokkir og börnin.
Leiðsögn: Guðrún Tryggvadóttir, frumkvöðull Náttúran.is.
Fjöldi gesta: 0.
Að lokum er svo hér ein blómaskoðun á íslensku fyrir þá Íslendinga sem
fluttir eru til Svíþjóðar:
8. Dalby Söderskog
(skammt frá Lundi): Mæting við Söderskog kl. 14:00. Stígurinn sem farinn
verður er fær fyrir kerrur og hjólastóla, og einungis 600 m á lengd.
Allir velkomnir, ungir sem aldnir, byrjendur sem lengra komnir.
Leiðsögn: Gróa Valgerður Ingimundardóttir, sími 0766288467.
Heildarfjöldi gesta í göngunum 2016 var því samtals 65.
Árið 2015 var boðið upp á plöntuskoðunarferðir þann 14. júní sem hér
segir:
1. Reykjavík:
Fossvogur. Mæting kl. 14:00 við ylströndina í
Nauthólsvík. Leiðsögn: Snorri Sigurðsson.
Fjöldi gesta 2.
2.
Reykjavík: Elliðaárdalur.
Mæting við hesthús Fáks við
Sprengisand kl. 11:00 og gengið þaðan. Gestir eru hvattir til að taka
með sér flóruhandbækur og stækkunargler. Fjallað verður um gróður
svæðisins og plöntur greindar. Leiðsögn: Hjörtur Þorbjörnsson.
Fjöldi gesta 5.
Var veðrið of gott fyrir grasagöngu ?
3. Borgarnes:
Fólkvangurinn Einkunnir. Mæting kl. 10:00 við
bílastæðin við Álatjörn í Fólkvanginum Einkunnum. Leiðsögn: Guðrún
Bjarnadóttir og Hilmar Már Arason.
Fjöldi gesta 2.
4. Snæfellsnes: Búðahraun. Blómaskoðun
í plöntufriðlandinu í Búðahrauni. Mæting kl. 14:00 við Búðakirkju.
Leiðsögn: Birna Heide Reynisdóttir landvörður og líffræðingur.
Fjöldi gesta 7. Veðurblíða, en gróður seint á
ferðinni eftir kuldann í vor.
5. Vesturbyggð:
Surtarbrandsgil við Brjánslæk. Mæting við miðasöluna í
Baldur á Brjánslæk kl. 13:00. Gengið verður í Surtarbrandsgil þar sem er
að finna steingerðar plöntuleifar. Leiðsögn: Hákon Ásgeirsson,
landvörður. Fjöldi gesta 2, í
blíðskaparveðri.
6.
Akureyri: Krossanesborgir.
Mæting á bílastæðinu norðan BYKO kl. 13:30. Nú blómstra öll vorblómin á
sama tíma á þessu síðbúna vori. Leiðsögn: Hörður Kristinsson.
Fjöldi gesta 18. Gróður síðbúinn eins og annars staðar, og
hafgolan þótti fremur köld, aðeins 10 gráður.
7. Vatnajökulsþjóðgarður - Ásbyrgi.
Mæting við Gljúfrastofu kl. 14:00. Gengið verður um Ásbyrgi og tekur
gangan um tvær klukkustundir. Leiðsögn: Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Fjöldi gesta 2.
8.
Fljótsdalshérað: Egilsstaðir, mæting kl. 13:00 á
bílastæði við göngustíg að Fardagafossi. Gengið upp með Miðhúsaá að
fossinum. Leiðsögn:
Skarphéðinn G. Þórisson. Fjöldi gesta
3, gróður mjög stutt á veg kominn.
Fjarðabyggð: Hólmanes. Því
miður þurfti að aflýsa þessari göngu.
9.
Fjarðabyggð: Neskaupstaður,
fólkvangur. Mæting við
upplýsingaskiltið á planinu við Norðfjarðarvita kl. 10:00. Gengið um
fólkvanginn sem hefur að geyma ýmsar einkennisjurtir Austfjarða auk
allmargra sjaldséðra tegunda. Leiðsögn: Guðrún Óskarsdóttir og Elín
Guðmundsdóttir. Fjöldi gesta
0, gróður mjög stutt á veg kominn.
10. Skaftafell. Mæting kl. 14:00 við
upplýsingamiðstöðina í Skaftafelli. Leiðsögn: Hrafnhildur Ævarsdóttir,
landvörður. Fjöldi gesta 6.
11. Suðurland: Alviðra.
Mæting við hlöðuna á umhverfissetrinu
Alviðru (gegnt Þrastalundi) kl. 15:00. Gengið verður um austurhlíðar
Ingólfsfjalls og flóran dásömuð. Þeir sem hafa mikinn tíma geta síðan
fylgt liði yfir í Öndverðarnes II eða hitt okkur þar um kl. 17:00. Takið
með ykkur plöntuhandbækur, myndavélar, teikniblokkir og börnin.
Leiðsögn: Guðrún Tryggvadóttir, frumkvöðull
Náttúran.is.
Fjöldi gesta 4, blíðskaparveður og 15
gráða hiti í hlíðinni, en gróður seint á ferðinni.
Gestir samtals yfir allt landið 2015: 51, hafa aldrei áður verið svona
fáir.
Árið 2014 var boðið upp á plöntuskoðunarferðir þann 15. júní sem hér
segir:
1. Reykjavík. Mæting
kl. 11:00 við Nauthólsvík. Gestir eru hvattir til að taka með sér
flóruhandbækur og stækkunargler. Fjallað verður um gróður svæðisins og
plöntur greindar. Leiðsögn: Hjörtur Þorbjörnsson og Snorri Sigurðsson. Fjöldi
gesta: 11.
2. Borgarnes. Mæting
kl. 10:00 við fólkvanginn Einkunnir, vestast í landi Hamars við
Borgarnes. Leiðsögn: Guðrún Bjarnadóttir og Hilmar Már Arason. Fjöldi
gesta: 9. Milt og gott veður en rigning.
3. Barðaströnd - Vesturbyggð. Mæting
kl. 13:00 við miðasölu Baldurs á Brjánslæk. Farið verður í náttúruskoðun
í Surtarbrandsgil. Leiðsögn: Hákon Ásgeirsson, landvörður. Fjöldi
gesta: 8 í blíðskaparveðri.
4. Steingrímsfjörður. Mæting
kl. 13:30 á Sævangi við Steingrímsfjörð. Genginn verður
Kirkjubólshringurinn. Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir.Fjöldi
gesta: 6. Ágætis veður en nokkur rigning.
5. Akureyri, Krossanesborgir.
Mæting kl. 11:00 á bílastæðinu norðan við ByKo. Leiðsögn: Sesselja
Ingólfsdóttir, Fornhaga. Fjöldi
gesta: 15, og alveg indælis veður.
6. Eyjafjarðarsveit,
Leifsstaðabrúnir. Mæting kl. 10:00 á bílastæði við gamla Vaðlaheiðarveg,
sunnan við vegamót Leifsstaðabrautar og Eyrarlands. Leiðsögn: Hörður
Kristinsson. Fjöldi
gesta: 6. Þurrt veður og logn.
7. Egilsstaðir. Mæting
kl. 10:00 við suðurenda Urriðavatns. Gengið verður um nágrenni
Pálstjarnar og upp á Ekkjufell. Leiðsögn: Skarphéðinn G. Þórisson. Fjöldi
gesta: 6. Skoðuð voru m.a. mýraberjalyng og villijarðarber.
8. Neskaupstaður. Mæting
kl. 10:00 við Hjallaskóg (skógræktina) ofan tjaldsvæðis. Leiðsögn:
Gerður Guðmundsdóttir. Fjöldi
gesta: 5. Veður gott, þurrt og logn.
9. Fáskrúðsfjörður. Göngufélag
Suðurfjarða stendur fyrir plöntu-skoðun í Fáskrúðsfirði. Mæting við
Sævarenda kl. 10:00. Gengið upp utan við Naustána sunnan við botn
Fáskrúðsfjarðar. Leiðsögn: Líneik Anna Sævarsdóttir. Fjöldi
gesta: 6. Skoðað m.a. sjöstjarna, maríuvöttur og melasól.
10. Skaftafell. Mæting
kl. 14:00 við upplýsingamiðstöðina í Skaftafelli. Leiðsögn: Sigurður
Ingi Arnarsson, landvörður. Fjöldi
gesta: 2. Rigning með yndislegum birkiilm í skóginum.
Gestafjöldi árið 2014 var
samtals 74 á 10 stöðum, alls staðar fremur fámennt, en góðmennt.