vex að jafnaði á
klettum við sjó. Hann er algengastur við vesturströnd landsins, en
finnst kring um landið þar sem klettar eru. Myndar oft ávalar
smáþúfur af uppréttum sprotum. Blöðin á sprotunum eru áberandi undin
eða hrokkin þegar þau eru þurr. Á enda laufprotanna myndar mosinn
oft brúnar þyrpingar af æxliþráðum, sem greinilega má sjá ef myndin
til hægri hér að neðan er stækkuð upp.
Ögurmosi á Gálgakletti á
Álftanesi 28. maí 1987.
Nærmynd sem sýnir brúna
æxliþræði á endum laufsprotanna. Hún er tekin við Lóndranga á
Snæfellsnesi 21. júlí 2005