eða Rifsveppur eins og hann heitir á íslenzku, er ekki mjög algengur sveppur hér, en sést þó stundum í allmiklu magni. Hann er gulur eða rauðgulur á litinn, með rifjum neðan á hattinum og niður á stafinn. Hann vex einkum í skóglendi, en einnig í móum. Hann er algengastur á Vesturlandi og Vestfjörðum, svo og í útsveitum á Norðurlandi. Rifsveppurinn er einn af allra eftirsóttustu matsveppum, enda mjög ljúffengur. Hann tilheyrir flokki vanfönunga, og klæðir kólflagið að utan rifin neðan á hattinum.