Þalið er hrúðurkennt, allstórt
um sig, grábrúnt-dökkbrúnt á litinn, ýmist reitskipt með þéttum,
strendum reitum sem aðskildir eru af svartri rönd forþals, eða
reitir eru strjálir, kringlóttir og sitja dreift um samfellt, svart
forþal, þvermál reita oftast 0,3-0,8 mm, vilja stundum losna frá
undirlaginu. Svart forþal oft áberandi með jaðrinum. Askhirzlur
algengar, svartar, lítið eitt gljáandi eða mattar, 0,4-1,5 mm í
þvermál, með svartri, meðalþykkri rönd, ýmist strjálar, kringlóttar
eða í smáþyrpingum og þá strendar. Gróin eru átta í aski, dökk
grásvört, blágræn eða svargræn, tvíhólfa, 17-28 x 8-14 μm. Askþekja
dökkbrún eða grásvört, askbeður glær, 120-170 μm þykkur, botnþekja
dökk brún. Skuggaflikra vex á basaltklöppum og hraungrýti. Hún er
algengust á hálendi Íslands, en einnig á víð og dreif um norðanvert
landið.
Þalsvörun:
K+ rautt, C-, P+ gul.
Innihald:
Norstictinsýra.
Skuggaflikra, tekin í suðvesturhlíð Snæfells á móbergsnibbu í 1280 m hæð 10. ágúst 1968.
Hér sjást hin dökku askgró skuggaflikrunnar.