Þal hagaskófarinnar
er blaðkennt, allstórt (10-20 sm), bleðlar um 1-2 sm
breiðir, fremur þunnir. Efra borðið er grátt, grábrúnt eða brúnleitt
á litinn, blágrænt í vætu, slétt og oftast vel gljáandi, jaðarinn
uppsveigður. Neðra borð er með ljósbrúnum eða bleikbrúnum, oftast
nokkuð skýrum, flötum æðum, dekkri í miðju, rætlingar brúnir,
einfaldir eða brúskkenndir, 3-5 mm á lengd. Askhirzlur eru algengar,
söðullaga, rauðbrúnar, 3-5 mm í þvermál. Gróin eru glær, nálarlaga,
fjórhólfa, 45-60 x 3-5 µm að stærð, bogin. Askþekjan er rauðbrún,
askbeðurinn glær, 75-95 µm þykkur, undirþekjan glær eða gulbrúnleit.
Hagaskófin vex yfir mosa á
grónum jarðvegi, í graslendi, yfir klettum eða í mólendi. Hún er
algeng um land allt frá láglendi upp í um 700 m hæð. Hæst skráð á
Seljadalsbrúnum á Tröllaskaga í 900 m.
Þalsvörun:
K-, C- eða C+ bleikleit, KC-, P-.
Innihald:
Tenuiorin, methylgýrofórat, gyrófórinsýra, dolichorrizin,
peltidactylin.
Myndin af hagaskóf er tekin við Bæjarstaði í Stöðvarfirði 8. júlí 2012. Neðra borð skófarinnar sést til hægri.