Bleðlar dílaskófar eru
ávalir, 2-4 sm breiðir, jaðarinn uppbrettur, stundum lítið eitt
hrokkinn. Efra borð er fagurgrænt í vætu en grágrænt eða grábrúnt í
þurrki, alsett dökkum, blágrænum eða svörtum, eins til tveggja mm
stórum hnyðlum sem eru dreifðar sem dökkir dílar um allt efra borð
skófarinnar. Yfirborð skófarinnar er annars slétt, jafnvel ofurlítil
gljáandi, með örstuttri loðnu út við jaðarinn. Neðra borðið er
ljósbrúnt meðfram jaðrinum, nær miðju með skýrum, dökk brúnum eða
nær svörtum æðum og áberandi hvítum svæðum á milli æðanna. Rætlingar
eru venjulega brúnir, í tættum brúskum. Askhirzlur eru 4-8 mm í
þvermál, sitja á mjóum hliðarbleðlum, rauðbrúnar að ofan en ljósar
og án barkarlags á neðra borði, eða með sundurlausum barkarvörtum út
við jaðarinn. Askgróin eru glær, 38-70 mikron á lengd en 3,4-5
mikron á breidd, ofurlítið bogin, gerð af fjórum frumum, um það bil
tífalt lengri en breið.
Þalsvörun:
K+ gulbrún, C-, KC-, P-.
Innihald:
Tenuiorin, Methylgyroforat og gyrofórinsýra.