Blóm lyfjagrassins eru lotin,
1-1,5 sm í þvermál. Krónan er dökk fjólublá, með 5 ávölum,
mislöngum sepum, þeir neðri lengri en þeir efri, með grönnum, dökkum
spora. Bikarinn er dökkur, með stuttum kirtilhárum. Fræflar eru tveir,
ein fræva. Blöðin eru öll í stofnhvirfingu, jarðlæg, gulgræn, heilrend,
2-3 sm á lengd, odddregin en snubbótt í endann með
upporpnum röndum, oftast með smáflugum sem límast við efra borðið.