Blóm mýraberjalyngsins eru
6-7 mm í þvermál, fjórdeild, drúpandi, hvert á 1-1,5
sm löngum rauðum legg, með tveim örsmáum forblöðum mishátt á miðjum
legg. Krónan er djúpklofin, fagurrauð, krónuflipar 4-5 mm á
lengd, djúpt aftursveigðir. Bikarinn er grunnskertur, dökkrauður.
Fræflar eru átta í knippi, standa út úr blóminu, knappleggirnir hærðir,
dökkbrúnir, frjóhirzlur aflangar, ljósbrúnar. Frævan er ein með löngum,
rauðum stíl. Aldinið er rautt ber, 5-7 mm í þvermál, og
stendur stíllinn upp úr því. Blaðsprotar eru jarðlægir, með stakstæðum,
gisstæðum, mjóhjartalaga eða langegglaga, stuttstilkuðum blöðum. Blöðin
eru sígræn með niðurorpnum röndum, 3-4 mm á lengd og
1,5-2 mm á breidd, dökkgræn eða rauðleit á efra borði en ljósgræn
neðan, með áberandi miðrifi.
Blómstrandi mýraberjalyng við Neslönd í Mývatnssveit árið 1983.
Mýraberjalyng með þroskuðum berjum á Grenivík við Eyjafjörð árið 1981